Frá afhendingu styrksins. Myndin er fengin af hi.is.
Frá afhendingu styrksins. Myndin er fengin af hi.is.

Margir nýútskrifaðir MA-ingar eru þessa dagana að hefja sitt háskólanám, víða um landið og jafnvel heiminn. Háskóli Íslands úthlutaði nýlega styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands og voru fimm MA-ingar í þeim hópi. Það eru þau Ari Óskar Víkingsson, Brynja Marín Bjarnadóttir, Hlynur Aðalsteinsson og Iðunn og Urður Andradætur.  MA óskar þeim og öllum styrkþegunum til hamingju. Hægt er sjá myndir frá athöfninni á facebook-síðu HÍ.