Á Ystuvíkurfjall 2. apríl 2009
Á Ystuvíkurfjall 2. apríl 2009

Hópur nemenda fór í dag í gönguferð á Ystuvíkurfjall ásamt íþróttakennurum og undir handleiðslu Sigurðar Bjarklind.

Að sögn Ingibjargar Magnúsdóttur íþróttakennara var þetta góð ferð þótt þátttakendur hefðu á undangengnum árum verið talsvert fleiri, nemendur í ferðinni voru einungis 22 talsins. Gengið var á fjallið og farið á hraðvirkari hátt niður snjóinn. Veður var ekki eins gott og vænst hafði verið eftir sólskinshelgina, en allir komu heilir til baka.

.