Hlöðver, Þórir Steinn og Jóhann Óli
Hlöðver, Þórir Steinn og Jóhann Óli

Lið Menntaskólans á Akureyri keppir í Gettu betur í Sjónvarpinu á föstudag og mætir þar liði Kvennaskólans í Reykjavík. Búast má við hörkukeppni, enda mátti lið MA lúta í lægra haldi fyrir Kvennaskólanum síðast þegar liðin áttust við.

Í liði MA, sem hefur gengið mjög vel í útvarpskeppninni, eru Hlöðver Stefán Þorgeirsson 3TX, Jóhann Óli Eiðsson í 4G og Þórir Steinn Stefánsson í 4F. Takmarkaður hópur stuðningsmanna mun fara suður á föstudag og standa með sínum mönnum í sjónvarpssal.

Skapti Hallgrímsson tók myndina af þeim félögum.