Drengirnir í liði MA í Gettu betur mæta vöskum nemendum Menntaskólans í Reykjavík í fyrstu umferð Gettu betur í Sjónvarpinu þetta árið. Strákarnir fara suður í dag. Á morgun fer 70 manna stuðningshópur suður til að vera við útsendinguna á keppninni í sjónvarpssal. Að sögn Öldu Karenar, formanns Hugins, er skólanum úthlutaður um það bil sá fjöldi sæta í salnum.

Í liði MA eru Örn Dúi Kristjánsson 4X, Jóhann Viðar Hjaltason 3D og Jóhann Ólafur Sveinbjarnarson 1F.