Á Skólatorgi í dag
Á Skólatorgi í dag

Prófum haustannar er um það bil að ljúka en meðan á þeim hefur staðið hefur lið MA í Gettu betur keppt tvívegis með stuttu millibili, unnið í bæði skiptin og er nú komið í 8 liða úrslit í sjónvarpi. Fyrst keppti Lið MA við lið Framhaldsskólans á Laugum á fimmtudaginn var og vann með 24 stigum gegn 8. Í kvöld var svo keppt við lið Fjölbrautaskóla Suðurnesja og MA vann með 21 stigi gegn 10.

Í liði MA að þessu sinni eru Hlöðver Stefán Þorgeirsson, Jóhann Óli Eiðsson og Þórir Steinn Stefánsson, en hann er sá eini þeirra sem hefur verið í liðinu áður. Þeim til aðstoðar hafa verið Heimir Björnsson kennari og  Einar Bessi Gestsson, liðsmaður frá fyrri árum auk nokkurra nemenda.