Þorsteinn, Jóhann og Guðrún
Þorsteinn, Jóhann og Guðrún

Skólafélagið Huginn hefur upplýst hvernig lið MA í Gettu betur verður skipað þetta skólaárið. Það eru þessir kláru nemendur sem munu freista þessa að komast alla leið í úrslitin í vetur: Guðrún Hulda Ólafsdóttir, Jóhann Ólafur Sveinbjarnarson og Þorsteinn Kristjánsson. Við óskum þeim öllum velgengni í keppninni, sem að vanda hefst í útvarpi þegar haustannarprófin standa sem hæst hér. Fram að því verða æfingar á æfingar ofan.

(Upplýsingar og mynd fengið af Facebooksíðu Hugins)