Gettu betur-stelpur ætla að halda æfingabúðir í lok sumars fyrir stelpur sem hafa áhuga á spurningakeppnum og/eða góðum félagsskap. Þær verða yfir helgi í lok ágúst og við viljum endilega fá sem stærstan og fjölbreyttastan hóp stelpna í búðirnar. Yfir þessa helgi munum við gera alls konar skemmtilegt - spila spurningaspil, segja frá tækni við æfingar, halda spurningakeppni, fræðast, fara í ratleik, borða saman, spjalla og kynnast.

Þann 7.maí blásum við til kynningar og skemmtilegheita í Menntaskólanum á Akureyri. Við ætlum að segja aðeins frá æfingabúðunum og verja svo restinni af tímanum í spurningaspil og stuð!

Allar stelpur úr 9. bekk, 10. bekk og úr framhaldsskóla, frá öllu Norðurlandi velkomnar í þetta stuð. Vonumst til að sjá sem flestar!

Semsagt:
7. maí
kl 15:30
Gettu betur stelpur
Menntaskólinn á Akureyri

Sjáumst!!!