Menntaskólinn á Akureyri sendir nemendum, öllu starfsfólki, vinum og velunnurum um land allt innilegar óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár og þakkar árið sem er að líða. Jólaleyfi var gefið að loknum jólasöngsal í morgun. Hús skólans verða lokuð í jólaleyfinu. Svarað verður í síma á skrifstofu skólans flesta virka daga og unnt að senda erindi í tölvupósti, ma@ma.is
Kennsla að loknu jólaleyfi hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 5. janúar.

.