Menntaskólinn á Akureyri sendir nýstúdentum, fjölskyldum þeirra og vinum, starfsfólki skólans og ekki síst afmælisárgögnunum, júbílöntunum,  bestu óskir um gleðilega hátíð.

Skólanum verður slitið við athöfn í Íþróttahöllinni, en hún hefst klukkan 10.

Frá hádegi til klukkan 15 er opið hús í MA og allir velkomnir að þiggja veitingar, skoða hús og muni og einnig sýningu á verkefnum nemenda þessa skólaárs.