MORFÍs-lið MA
MORFÍs-lið MA
Það eru annir í félagslífi nemenda, árshátíðin framundan, en MORFÍs-lið MA gerði góða ferð til Reykjavíkur og vann góðan sigur.

 

MORFÍs lið MA fór semsagt til Reykavíkur á föstudaginn var og keppti þar við Tækniskólann. Lið MA mælti með sifjaspellum og lagði ræðulið Tækniskólans að velli með 239 stiga mun. Ræðukona kvöldsins var Lovísa Helga Jónsdóttir menntskælingur. 

Lið MA skipa:
Arnar Bikir Dansson Liðsstjóri
Ester Alda Hrafnhildar-Bragadóttir - Frummælandi
Karólína Rós Ólafsdóttir - Meðmælandi
Lovísa Helga Jónsdóttir - Stuðningskona

 

Við óskum þeim góðs gengis í framhaldinu.