Kjarninn úr hádegisgönguhópnum
Kjarninn úr hádegisgönguhópnum

Hópurinn byrjaði að ganga saman í ágúst 2003 og hefur nánast gengið hvert einasta hádegi síðan, frá því um miðjan ágúst til loka júní hvert ár. Þessar fjórar sem eru á myndunum hafa verið með allan tímann, auk þess sem Árný Helga Reynisdóttir, Hildur Hauksdóttir og Margrét K. Jónsdóttir hafa verið hluti af hópnum til lengri eða skemmri tíma. Stundum hafa líka einhverjir áhugasamir gestir bæst í hópinn.

Á myndinni eru Þorbjörg Þorsteinsdóttir, Alma Oddgeirsdóttir, Herdís Zophoníasdóttir og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir. Allar eru þær sannfærðar um að göngurnar bæta líðan og geð og þar með starfsorku og gleði.