Um 220 nýnemar hefja nám við Menntaskólann á Akureyri þetta haustið. Ýmsar hagnýtar upplýsingar um skólann og skólastarfið má finna í nýrri handbók fyrir foreldra og forráðamenn nýnema. Fljótlega eftir helgi fá nemendur sendar upplýsingar um aðgang að Innu en þar geta þeir m.a. séð í hvaða bekk þeir eru skráðir, stundatöflu og bókalista.

Sækja handbókina fyrir foreldra og forráðamenn.