Heimavist MA
Heimavist MA

Óbreytt verð verður á heimavistinni næsta vetur, hvort tveggja leiguverð á herbergjum og mötuneytiskostnaður. Umsóknafrestur er ti 12. júní. Í tilkynningu frá rekstrarfélaginu Lundi segir m.a.:

Gaman að búa á heimavist!
Heimavistin á Akureyri  -  óbreytt verðskrá.

Húsaleiga fyrir skólaárið 2009 til 2010 verður óbreytt frá fyrra ári.
Verðskrá mötuneytis fyrir haustönn 2009 verður óbreytt frá fyrra ári.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Heimavistar: www.heimavist.is
Umsóknarfrestur er til 12. júní.

Hlökkum til að sjá ykkur í haust.
Starfsfólk Heimavistarinnar á Akureyri.

Á Heimavistinni á Akureyri búa liðlega 300 framhaldsskólanemendur. Heimavistin er gott og öruggt heimili þar sem vel er búið að íbúum.

.