Sagt frá Chicago
Sagt frá Chicago

Um það bil 20 nemendur frá Latin School of Chicago eru staddir hér í MA með tveimur kennurum sínum. Þeir eru hér í skóla í dag og hafa meðal annars farið í bekki og kynnt skólann sinn og borgina, og verða með gestgjöfum sínum nemendum í kvöld, en gista á gistiheimili. Á morgun fara þeir í Mývatnssveit og halda á miðvikudag suður og skoða þar eitt og annað á Gullna hringnum og í Reykjavík áður en farið verður heim á laugardag.

Menntaskólinn hefur nokkrum sinnnum áðaur fengið heimsóknir frá Latin School of Chicago og þeir Steven Cobery og Kenneth Bowen eru þá í för með nemendum. Gott að fá góða gesti.