Herdís kynnir MA
Herdís kynnir MA

Þessa dagana koma hópar nemenda úr grunnskólum á Norðurlandi í heimsókn í MA til að kynna sér nám og starf hér. Í dag komu nemendur úr Húnaþingi og frá Húsavík. Gestirnir fá kynningu á félagslífinu og náminu í skólanum, ganga um skólann og skoða húsin og sjá nemendur að störfum og fara einnig og skoða heimavistina.

Myndirnar voru teknar í dag í Gamla skóla þegar nemendur úr Borgarhólsskóla á Húsavík fræddust um MA hjá Herdísi Zophóníasdóttur náms- og starfsráðgjafa MA.

.