Hildur Hauksdóttir enskukennari er í hópi fimm kennara sem í gær hlutu viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf. Í frétt frá Menntavísndasviði segir:

Menntavísindasvið Háskóla Íslands veitti fimm kennurum viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands þann 1. júní. Verðlaunin eru afrakstur kynningarátakisins „Hafðu áhrif“ sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir á vormánuðum en þar gafst almenningi kostur á að tilnefna eftirminnilega kennara.

Viðtökurnar voru afar góðar en um 350 kennarar á öllum skólastigum voru tilnefndir af nærri 800 hundruð manns. Niðurstaðan var sú að veita fimm framúrskarandi kennurum á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi viðurkenningar fyrir framlag þeirra til kennslu.

Eftirfarandi kennarar hlutu viðurkenningu að þessu sinni: Ásthildur Kjartansdóttir Breiðagerðisskóla, Hildur Hauksdóttir Menntaskólanum á Akureyri, Nichole Leigh Mosty Leikskólanum Ösp, Þorgerður Ingólfsdóttir Menntaskólanum við Hamrahlíð og Örn Arnarson Heiðarskóla – Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.

Menntaskólinn á Akureyri óskar Hildi hjartanlega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.

Á myndinni eru frá vinstri: Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands, Ásthildur Kjartansdóttir, Hildur Hauksdóttir, Fríða Bjarney Jónsdóttir sem tók við verðlaununum fyrir hönd Nichole Leigh Mosty, Þorgerður Ingólfsdóttir, Örn Arnarson og Jóhanna Einarsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.