Það reyndist einfalt fyrir Menntaskólann Akureyri að safna stigum fyrir þessi atriði, en mötuneyti starfsmanna er rekið með það að sjónarmiði að matarsóun sé sem allra minnst, og eingöngu er boðið upp á grænmetis- og grænkerafæði sem er í senn heilsusamlegt, litríkt og gómsætt. Við úttekt á þriðja skrefinu hjá MA vakti þetta sérstaka athygli. Okkur hjá Grænu skrefunum lék forvitni á að vita hvernig gengi að reka grænmetismiðað mötuneyti og hvernig starfsfólkið tæki því, en um 25-35 starfsmenn snæða þar daglega í hádeginu. An-Katrien greindi frá því að hún sé búin að elda fyrir starfsfólkið í um sjö ár, starfsfólkið hafi almennt tekið henni og grænmetisfæðinu mjög vel og jafnvel beðið hana um að halda kvöldnámskeið í matreiðslu grænmetisrétta svo þeir geti boðið upp á svipaðan mat heima við.
Í innkaupum horfir An-Katrien til þess að kaupa sem mest lífrænt, og mat sem framleiddur er í nærumhverfi þegar það er mögulegt. Hún segir oft erfitt að komast hjá plastumbúðum, og að matvælafyrirtæki og birgjar þyrftu að taka sig á í þeim efnum. Allt er eldað frá grunni í eldhúsinu af henni og öðrum starfsmanni, og það er fyrirfram skráning í matinn til að hægt sé að elda nákvæmt magn. Á föstudögum er boðið upp á afganga vikunnar, og kapp lagt á að farga sem minnstu."