Kynningardagur hraðlínu almennrar brautar verður haldinn í Kvosinni, sal Menntaskólans á Akureyri á Hólum 5. febrúar næstkomandi og hefst klukkan 17.

Nemendur 9. bekkar, sem hafa hug á að hoppa yfir 10. bekk og fara rakleitt í Menntaskólann, forráðamenn þeirra og aðrir, sem áhuga hafa á hraðlínunni, eru velkomnir á þessa kynningu. Brautarstjóri mun þar kynna kosti þessarar námsleiðar og nemendur á hraðlínu segja frá reynslu sinni af náminu, skólastarfinu og lífinu og tilverunni í MA. Auk þess munu námsráðgjafar og kennarar vera til viðtals.

.