Erla Mist Magnúsdóttir og Fjölnir Brynjarsson
Erla Mist Magnúsdóttir og Fjölnir Brynjarsson

Góð aðsókn var að kynningu á hraðlínu almennrar brautar í Kvosinni í MA í dag. Fjölmargir nemendur grunnskóla og forráðamenn þeirra komu í heimsókn og fylgdust með kynningu Hildar Hauksdóttur á fyrirkomulagi námsins, en hún heldur utan um almennu brautina. Einnig komu fram tveir núverandi nemendur á hraðlínu og sögðu frá því hvers vegna þeir völdu þessa leið og hvernig þeim líkaði. Margar spurningar vöknuðu og að formlegri kynningu lokinni ræddu gestirnir við þá fulltrúa stjórnenda og kennara sem á fundinum voru.

Fleiri myndir eru á Facebooksíðu MA