Nóvembermorgunn á mynd Stefáns
Nóvembermorgunn á mynd Stefáns

Morgunljóminn felur oft í sér ómetanlega fegurð. Stefán Erlingsson festi þetta andartak á mynd í morgun. Ársólin gyllir skýin og þau speglast í gluggum Gamla skóla. Engu er líkara í þessu ljósaspili en eldur logi innan dyra, en hrafnarnir Huginn og Muninn flögra þarna um og gæta þess að allt sé með felldu.