- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Innritun í framhaldsskóla landsins er nú lokið og umsækjendur geta séð stöðu umsókna sinna á island.is.
Aðsókn var mjög góð í MA. Alls sóttu 240 nýnemar á fyrsta ári um skólavist með MA sem fyrsta kost, auk eldri nemenda. Teknir voru inn 216 nýnemar í fyrsta bekk, auk nokkurra eldri og 13 nemendur á íslenskubrú sem ýmist eru á fyrsta eða öðru ári. Alls hefja því um 235 nýir nemendur nám við skólann á haustönn. Mjög fjölmennur árgangur lauk námi nú í vor og voru 184 stúdentar brautskráðir. Nemendafjöldi verður þó svipaður næsta skólaár þar sem svo margir nýnemar voru teknir inn.
Skrifstofa skólans er lokuð frá 23. júní til 5. ágúst. Erindum til skólans utan opnunartíma skrifstofu er best að beina á netfang skólans, ma@ma.is.
Skólinn verður settur 18. ágúst kl. 09:30. Skóladagatal næsta skólaárs er aðgengilegt hér á ma.is Við biðjum forráðafólk að skipuleggja frí barna sinna þannig að það hafi sem minnst áhrif á mætingu þeirra í skólann.
Stundatöflur og bókalistar verður aðgengilegt á INNU stuttu fyrir skólabyrjun. Nýnemabréf með upplýsingum um innritunargjöld og fleira er á ma.is.
Starfsfólk skólans óskar nemendum skólans og forráðafólki þeirra gleðilegs sumars.