Innritun nýnema haustið 2008 er fyrir nokkru lokið og ljóst að um það bil 220 nemendur verða teknir í fyrsta bekk, þar af 19 á hraðlínu almennrar brautar og 15 á stoðlínu. Þetta er um það bil 20 nemendum færra en tekið var í fyrsta bekk síðastliðið haust. Við það verður ögn færra í bekkjum en bekkjardeildir jafnmargar og í fyrra. Samkvæmt þessu verða nemendur í skólanum næsta vetur um 750.

.