Kolbeinn fær sér hafragraut og lýsi.
Kolbeinn fær sér hafragraut og lýsi.

Í heilsuvikunni í MA er nú komið að því að slá upp íþróttahátíð, en hún verður í Íþróttahöllinni milli klukkan 10 og 12. Áfram er boðið upp á hollustu í byrjun skóladags.

Í morgun stóð ÍMA, Íþróttafélag MA, fyrir hlaðborði af ávöxtum þegar nemendur komu í skólann og kennarar buðu upp á hafragraut og lýsi. Þetta nýtur allt ágætrar hylli nemenda.