Kennaraliðið
Kennaraliðið

Nemendur og kennarar litu upp úr verkefnum velgengnisdaga og héldu íþróttakeppni í Höllinni og gekk ýmsum betur en öðrum og öðrum verr. Sigurvegarar voru margir en eftirminnilegur kennurum er yfirburðasigur í þrautabraut og glæsilegur sigur í blaki gegn langbesta liði nemenda. Annars er betra að hafa myndir en mörg orð.

Fyrst var að vísu fjallað um hollustu og hreyfingu í anda heilsueflandi skóla í Kvosinni og þar var farið í nokkrar valdar hléæfingar.