2. og 4. keppa í blaki
2. og 4. keppa í blaki

Í gær var íþróttadagur í Menntaskólanum á Akureyri. Nemendur og kennarar brugðu sér í Höllina og kepptu í nokkrum íþróttagreinum á milli klukkan 10 og 12. Keppnisgreinar voru þrautabraut, körfubolti, blak, fótbolti og bandí. Kennarar voru með afar sterkt lið sem vann flestar greinar sem það tók þátt í. Höfðu nemendur um það fremur fá orð. Áhorfendur voru margir og þessi uppákoma var hin ágætasta. Nokkrar myndir tók svp á staðnum.

.