Hvatt er til hreyfingar í Íþróttaviku Evrópu.
Hvatt er til hreyfingar í Íþróttaviku Evrópu.

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) hefst í dag í fjölmörgum Evrópulöndum. Markmiðið er að kynna íþróttir og hreyfingu og vinna gegn hreyfingarleysi. Einkunnarorð Íþróttaviku Evrópu eru BeActive en Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands heldur utan um verkefnið. Menntaskólinn á Akureyri lætur ekki sitt eftir liggja og hvetur til hreyfingar nú sem endranær. Íþróttakennarar skólans og stjórn ÍMA hafa veg og vanda af dagskránni sem er fjölbreytt eins og sjá má hér að neðan.

 

Mánudagur 23. sept. Stinger – keppni út á útisvæði milli árganga. Einnig verður hægt að spila Kubb, Frisbee-golf og Kubb.

Þriðjudagur 24. sept. Námsmatsdagur. Aukatími í HEIL bæði í Fjósi og World Class kl. 11:00 – 12:00.

Miðvikudagur 25. sept. Liðkun, leikir og spil í Kvosinni í löngu.

Fimmtudagur 26. sept. Lyftingakeppni milli árganga í Kvos.

Föstudagur 27. sept. Bekkjar/starfsmanna keppni í blaki í Höllinni kl. 14:40 – 16:00.

 

Allir viðburðir verða auglýstir nánar með dags fyrirvara.

Með því að smella hér má sjá dagskrá ÍBA og aðildarfélaga í Íþróttaviku Evrópu.