- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Jafnréttisvika er hafin í MA. Eitt og annað verður á dagskrá næstu daga í tilefni jafnréttisvikunnar í boði Femínistafélags MA (FemMA), Jafnréttisfélags MA (PrideMA) og Hugins (sjá Jafnréttisvika í MA 20. - 24. janúar). Dagskráin hófst í Kvosinni í dag með fyrirlestri Ágústu Björgu Kettler Kristjánsdóttur. Fyrirlesturinn bar yfirskriftina Kynlífsmenning framhaldsskólanema – samþykki, samskipti og menning. Fyrirlestur Ágústu er byggður á meistararitgerð hennar en auk þess kennir Ágústa kynjafræði í Kvennaskólanum.