Í forkeppni stærðfræðikeppni framhaldsskólanna, sem haldin var fyrir skemmstu, varð Jóhann Ólafur Sveinbjarnarson í 2. bekk T í öðru sæti á neðra þrepi, sem ætlað er nemendum á fyrri tveimur árum framhaldsskóla. Glæsilegur árangur hjá Jóhanni og Menntakólinn á Akureyri óskar honum til hamingju og velfarnaðar í því sem þessu kann að fylgja.