Jólasöngsalur 2010
Jólasöngsalur 2010

Það var sungið hátt og snjallt á jólastund í Kvosinni í morgun. Undanfarna daga hefur verið mikið álag á nemendum og kennurum við alls kyns frágang og skil og allir sólgnir í frí. Nemendur sungu fjöldann allan af jólasöngvum og gengu í kringum jólatré og stóra hringi umhverfis Kvosina við undirleik konsertmeistarans..

Að loknum söng óskaði skólameistari nemendum og starfsfólki velfarnaðar á heimleið og um hátíðar og góðrar endurkomu á nýju ári.

Menntaskólinn á Akureyri sendir öllum nemendum, starfsfólki og velunnurum nær og fjær hugheilar jóla- og nýársóskir.

.