Jólasöngur 20. desember 2011
Jólasöngur 20. desember 2011

Nemendur syngja nú á Sal og búa sig undir að komast í langþráð jólaleyfi. Þeir syngja dátt undir stjórn Jóhanns Axels konsertmeistara og ganga í kringum jólatré.

Jólaleyfi verður gefið að söng loknum og skólastarf liggur niðri fram yfir áramótin. Kennsla hefst að nýju samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 4. janúar 2012. Hús skólans verða lokuð í jólaleyfinu.