Kennarafélög Framhaldsskólans á Húsavík, Menntaskólans á Akureyri, Framhaldsskólans á Laugum, Menntaskólans á Tröllaskaga og Verkmenntaskólans á Akureyri standa saman að ályktun þar sem sameiningaráformum mennta- og menningarmálaráðherra er mótmælt. Í ályktuninni er þess krafist að ráðherra dragi þessar tillögur til baka en stuðli frekar að auknu samstarfi skólanna.

Ályktunin er svohljóðandi:

Menntamálaráðuneytið hefur kynnt stjórnendum framhaldsskóla á Norðurlandi tillögur um sameiningu þeirra, annars vegar Menntaskólans á Akureyri, Menntaskólans á Tröllaskaga og Framhaldsskólans á Húsavík, hins vegar Verkmenntaskólans á Akureyri og Framhaldsskólans á Laugum.

Tillögurnar eru unnar án nokkurs samráðs við stjórnendur og starfsfólk skólanna, þær byggja á afar óljósum faglegum forsendum og taka ekkert mið af hugmyndum heimamanna um hvernig skipulagi framhaldsskólastarfs á svæðinu verði best háttað.

Kennarafélög allra skólanna sem um ræðir lýsa megnri óánægju með það virðingarleysi sem ráðuneytið sýnir skólunum með vinnubrögðum við undirbúning tillagnanna og því hvað þær eru seint fram komnar. Við teljum að tillögurnar séu liður í að draga úr fjárframlögum til skólanna og skerða þannig það nám sem nemendum svæðisins stendur nú til boða því að engin haldbær rök hafa verið færð fyrir því að sameining skólanna bæti faglegt starf þeirra. Síðast en ekki síst mótmælum við því harðlega að skólunum skuli ætlað að takast á við þetta verkefni á sama tíma og unnið er að viðamiklum og mikilvægum nýjum viðfangsefnum s.s. innleiðingu nýrra skólanámskráa og upptöku nýrra vinnumatsaðferða í skólunum.

Við krefjumst þess að ráðuneytið dragi þessar hugmyndir þegar í stað til baka en hvetjum ráðherra þess í stað til að vinna að auknu samstarfi ofangreindra framhaldsskóla sem skipulagt yrði á forsendum skólanna og byggðanna sem þeir þjóna.

Þess má geta að stjórn Félags framhaldsskólakennara og samninganefnd félagsins hafa lýst þungum áhyggjum af áformum um sameiningu. Sjá nánar á vef KÍ (http://ki.is/um-ki/utgafa/frettir/2670-thungar-ahyggjur-af-aformum-um-sameiningu).