Leikhússport
Leikhússport

Á miðvikudagskvöldið 10. mars verður merkileg og óvenjuleg keppni á sviði Samkomuhússins á Akureyri þar sem Leiktu betur lið MA keppir við atvinnuleikara LA í leikhússporti.

Leiktu betur lið MA hefur undanfarin ár tekið þátt í keppninni Leiktu betur á vegum ÍTR og fleiri í Reykjavík og staðið sig frábærlega, unnið til verðlauna og komist fyrir vikið á sviðslistakeppni í útlöndum. Í þetta eina sinn munu hinir ungu áhugaleikarar etja kappi við atvinnufólkið hjá LA og það verður spennandi að sjá það sem þar fer fram. Þarna reynir á útsjónarsemi, samvinnu og spunafærni.

Keppnin fer fram á sviði Samkomuhússins á miðvikudag, eins og fyrr segir  og hefst klukkan 20.

.