Heimir og Lena námsráðgjafar með kynningu fyrir nemendur í Lundarskóla. Myndina tók Hildur Mist náms…
Heimir og Lena námsráðgjafar með kynningu fyrir nemendur í Lundarskóla. Myndina tók Hildur Mist námsráðgjafi í Lundarskóla.

 

Forinnritun nemenda í 10. bekk stendur yfir, til 13. apríl.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk fer fram 6. maí til 10. júní.

Innritun eldri nemenda er til 31. maí.

Sótt er um skólavist á menntagatt.is

Heimir og Lena námsráðgjafar hafa heimsótt alla grunnskólana á Akureyri undanfarnar vikur og einnig boðið upp á rafrænar kynningar fyrir þá sem þess óska, ekki síst skóla utan Akureyrar. 

Eftir páska verður nemendum einnig boðið upp á heimsókn í skólann.

Skoðið endilega nýtt kynningarmyndband MA.