Kór MA á árshátíð MA 2011
Kór MA á árshátíð MA 2011

Kór MA tekur nú upp gamlan þráð og efnir til vortónleika á Sal í Gamla skóla núna á laugardaginn klukkan 15. Gengið verður inn um aðaldyr Gamla skóla.

Stjórnandi kórsins í vetur er Vilhjálmur Ingi Sigurðsson, en kórinn kom fyrst fram undir hans stjórn á árshátíð MA í desember.

Ókeypis er á tónleikana og boðið verður upp á léttar veitingar á Gamla Sal að söng loknum.