Í gær var kynningardagur frambjóðenda til embætta í félagslífinu, veitingar og veggspjöld. Kjósa skal í stjórn skólafélagsins Hugins og annarra félaga sem undir Hugin heyra svo og til ýmissa stjórna og ráða. Í dag eru fluttar framboðsræður í Kvosinni, þar sem myndin var tekin, og síðan verður gengið til kosninga.

Stjórnarskipti í Hugin, skólafélagi MA, verða á föstudag klukkan 9.00.

Mjög margir eru í framboði til þessara fjölmörgu embætta. Kynning á frambjóðendum er á vef Hugins.