Birt hafa verið úrslit kosninga til stjórnar Hugins, skólafélags MA, og annarra embætta. Björn Kristinn Jónsson er nýr formaður Hugins.

Kosið var á þriðjudag en þar sem reglur kveða á um að 50% atkvæða þurfi til að teljast hafa náð kjöri þurfti að kjósa á ný til þriggja embætta. Seinni atkvæðageiðslan fór fram í dag og undir kvöld voru úrslit birt. Ný stjórn skólafélagsins Hugins tekur við störfum á föstudag. Hana skipa:

  • Björn Kristinn Jónsson formaður
  • Kristján Helgi Garðarson varaformaður
  • Fjölnir Unnarsson gjaldkeri
  • Daði Jónsson ritari
  • Þorsteinn Kristjánsson skemmtanastjóri
  • Valgerður María Þorsteinsdóttir meðstjórnandi
  • Ívan Árni Róbertsson forseti fjáröflunarnefndar
  • Gunnur Vignisdóttir forseti hagsmunaráðs

 

Öll úrslit kosninganna eru birt á vef Hugins.