Frá Torginu í morgun
Frá Torginu í morgun

Konur í Menntaskólanum og Verkmenntaskólanum gengu út úr húsi klukkan 9.30 í dag og efndu til samstöðufundar á Ráðhústorgi. Nemendur í kynjafræði í báðum skólunum og Feministafélagið í MA skipulögðu daginn. Á torginu var góð dagskrá með tónlist og hvatningarræðum og spjöld höfð á lofti til að minna á misrétti það sem enn er við lýði í launamálum.

Eyrún Huld tók nokrar myndir á Torginu. Þær eru hér í Myndasafni