Fulltrúar frá háskólanum í Martin ásamt skólameistara, kennurum og nemendum í MA.
Fulltrúar frá háskólanum í Martin ásamt skólameistara, kennurum og nemendum í MA.

Menntaskólinn á Akureyri og læknadeild háskólans í Martin í Slóvakíu eiga í alþjóðlegu samstarfi um að kynna heilbrigðistengt nám í Martin sem og að efla og þróa samstarf milli skólanna tveggja.

Fulltrúar háskólans í Martin komu í heimsókn í MA í gær og hittu nemendur og kennara og sögðu frá náminu. Einnig kom Magnús Ingi Birkisson MA-ingur (stúdent 2015) sem stundar nám í Martin og sagði frá því hvernig er að búa og stunda nám í Martin.

Nemendur MA geta sett sig samstarf við Heimi náms- og starfsráðgjafa ef þau vilja fá frekari upplýsingar um nám í Martin í Slóvakíu.