Að lokinni skólasetningu í morgun var kynning á skólastarfinu og náminu fyrir foreldra og forráðamenn nýnema og einnig aðalfundur ForMA. Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir aðstoðarskólameistari og sviðsstjórarnir Alma Oddgeirsdóttir og Valdís Björk Þorsteinsdóttir sögðu frá starfinu og sátu fyrir svörum.

Að lokinni kynningu var aðalfundur ForMA, Foreldrafélags MA. Fráfarandi formaður, Jón Stefán Baldursson, flutti skýrslu stjórnar um síðasta starfsár og kosin var ný stjórn. Nýir félagar þar eru Adda Laufey Egilsdóttir, Arne Vagn Olsen, Ásdís Elva Helgadóttir og Erla Sigurðardóttir, en úr fyrri stjórn sitja áfram Ester Stefánsdóttir, Jóhanna M. Matthíasdóttir og Ragnheiður Halldórsdóttir.

Myndin er fá hinum fjölmenna fundi í Kvosinni í morgun.