Framboðskynning 6. maí
Framboðskynning 6. maí

Nemendur í lífsleikni í fjórða bekk hafa allir fengið kynningu á listunum sex sem bjóða fram hér á Akureyri í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Fundir voru haldnir í gær og í dag, þeir voru vel sóttir og nemendur voru duglegir að koma með fyrirspurnir.

Í lífsleikni í 4. bekk er lagt upp úr að efla borgaravitund nemenda og var þessi heimsókn liður í þeim þætti námsins. Fulltrúar nemenda sáu um fundarstjórn og stóðu sig með stakri prýði.

.