Fjölmennur foreldrafundur í október 2008 í Kvosinni
Fjölmennur foreldrafundur í október 2008 í Kvosinni

Kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema verður haldinn laugardaginn 18. október nk. og hefst klukkan 14.00 á Sal skólans á Hólum.  Gert er ráð fyrir að dagskránni verði lokið kl. 16:00 og þá verði aðalfundur foreldrafélagsins.

Markmið fundarins er að kynna námið í skólanum og margs konar starf sem ætlað er að styðja við nýnema á fyrsta ári.  Nemendur kynna félagslífið, námsráðgjafi segir frá nemendavernd og einnig verður fjallað um ný framhaldsskólalög og hvað þau þýða fyrir nemendur. Nemendur þurfa ekki síst á stuðningi og hvatningu foreldra að halda og er það álit okkar að þann stuðning sé auðveldara að veita þegar nokkur þekking á skólanum og starfi hans er fyrir hendi.  Því vonumst við til að sjá ykkur sem flest þann 18. október.

Að lokinni dagskrá verður boðið upp á kaffi og meðlæti sem nemendur á 3ja ári reiða fram og er óhætt að lofa góðum kökum.  Að því búnu fara foreldrar/forráðamenn með umsjónarkennurum barna sinna í stofur. Þar gefst tími til að segja aðeins frá fyrstu skóladögunum, kynna INNU og fara yfir þau atriði sem foreldrar hafa áhuga á að ræða. Foreldrum gefst einnig kostur á að tala við umsjónarkennara einslega ef þörf er á. Námsefni verður til sýnis og brautarstjórar svara fyrirspurnum varðandi námsgreinar í 1. bekk.  Þá er þetta einnig kjörið tækifæri til þess að skoða sig um í húsakynnum skólans.

Að öllu þessu loknu verður haldinn aðalfundur FORMA, Foreldrafélags Menntaskólans á Akureyri. Þess er vænst að foreldrar og forráðamenn komi á fundinn, kynni sér félagið og taki þátt í foreldrastarfinu.

.