- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Menntaskólinn á Akureyri auglýsir eftir kennara í eðlisfræði/jarðfræði í fullt starf.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í eðlisfræði / jarðfræði og kennsluréttindi. Ráðið verður í stöðuna frá 23. janúar 2017. Umsóknarfrestur er til 31. október 2016.
Menntaskólinn á Akureyri auglýsir jafnframt eftir kennara í stærðfræði.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í stærðfræði og kennsluréttindi. Ráðið verður í stöðuna frá 23. janúar 2017. Umsóknarfrestur er til 2. nóvember 2016
Um báðar stöðurnar gildir eftirfarandi:
Leitað er að umsækjanda sem er fær í samskiptum, á gott með að vinna með nemendum og er tilbúinn til að taka þátt í þróun kennslu og náms.
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Kennarasambands Íslands og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans.
MA er framsækinn menntaskóli með langa sögu og býr nemendur undir nám í háskóla og líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi í sífelldri þróun. Skólinn starfar undir kjörorðunum virðing – víðsýni – árangur. Í MA er öflugt þróunarstarf og góður starfsandi.
Skriflegar umsóknir, ásamt prófskírteinum og upplýsingum um nám og fyrri störf skulu berast Menntaskólanum á Akureyri samkvæmt ofanrituðum dagsetningum. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Ef þú vilt takast á við krefjandi kennarastarf í metnaðarfullum skóla er tækifærið hér. Frekari upplýsingar veita Jón Már Héðinsson skólameistari og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir aðstoðarskólameistari, sími: 4551555, netfang ma@ma.is .
Menntaskólanum á Akureyri,
Jón Már Héðinsson
Skólameistari MA