MA sumar
MA sumar

Við Menntaskólann á Akureyri eru lausar til umsóknar kennarastöður í efnafræði, líffræði og samfélagsgreinum (félagsfræði og sögu).

Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í viðkomandi grein og kennsluréttindi. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2010.

Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Kennarasambands Íslands og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans.

MA er framsækinn menntaskóli með langa sögu og býr nemendur undir nám í háskóla og líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi í sífelldri þróun. Skólinn starfar undir kjörorðunum virðing ? víðsýni ? árangur. Í MA er öflugt þróunarstarf og góður starfsandi.

Leitað er að kennurum sem hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og eiga gott með að vinna með nemendum og öðrum kennurum.

Skriflegar umsóknir, ásamt prófskírteinum og upplýsingum um nám og fyrri störf skulu berast Menntaskólanum á Akureyri í síðasta lagi 15. maí 2010. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Ef þú vilt takast á við krefjandi kennarastarf í metnaðarfullum skóla er tækifærið hér. Frekari upplýsingar veita Jón Már Héðinsson skólameistari og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir aðstoðarskólameistarií síma skólans 4 55 15 55 eða í tölvupósti, netfang ma@ma.is .

Jón Már Héðinsson
Skólameistari MA

.