Vorannarpróf eru ríflega hálfnuð, flestum reglulegum prófum verður lokið á mánudag og þriðjudag í næstu viku. Prófsýningar verða í skólanum mánudaginn 11. júní. Þær verða nánar auglýstar á töflum í anddyri Hóla.

Sjúkrapróf verða að langmestu leyti föstudaginn 8. júní. Endurtökupróf verða í vikunni þar á eftir, hefjast 11. júní. Töflur yfir sjúkra- og endurtökupróf verða birtar hér á Vef MA.

Þurfi nemandi að endurtaka próf þarf hann að greiða 8.000 krónur fyrir hvert þeirra. Sækja þarf um að endurtaka próf, en nemendur geta greitt fyrir prófin í netbanka, og þurfa þá að skrá í skýringu nafn sitt og prófið sem þeir ætla að taka. Reikningsnúmerið er: 0302 - 26 - 827 og kennitala skólans er 460269-5129