Þrátt fyrir kalsaveður var brugðið á leik í dag og hafðir sérstaklega litlir Ólympíuleikar. Það styttist í skólalok og ekki má missa marga tíma. Þar sem enginn 4. bekkur U er í skólanum í ár skoruðu 4. bekkur T og X á kennara og öttu kapi við þá í nokkrum leikjum, meðal annars þrautabraut og sápuhandbolta, sem sjá má hér á myndum. Flestum þótti trúlega gott og jafnvel aðalatriði dagsins að hakka í sig nýgrillaðar pylsur hjá splunkunýrri stjórn Hugins, en stjórnirnar tókust að vanda á í lokin, gömul og ný.

Fleiri myndir hér í Myndasafni.