Lið MA í Gettu betur
Lið MA í Gettu betur

Lið Menntaskólans á Akureyri vann lið Framhaldsskólans á Húsavík í seinni umferð Gettu betur á Rás 2 og keppir í fyrsta leik Sjónvarpsins þetta árið, nánar tiltekið 8. febrúar. Þar fá drengirnir í MA verðugan andstæðing, lið Menntaskólans í Reykjavík. Nú væri viðeigandi að Ríkisútvarpið hefði þessa viðureign í beinni útsendingu frá Akureyri.

Í liði MA eru Örn Dúi Kristjánsson 4X, Jóhann Viðar Hjaltason 3D og Jóhann Ólafur Sveinbjarnarson 1F. Myndin er tekin að láni af vef Ríkisútvarpsins.