MA-ingar í forritunarkeppni
MA-ingar í forritunarkeppni

Forritunarkeppni framhaldsskólanna fór fram í HA um síðastliðna helgi. Alls tóku þátt 11 lið frá MA, tvö eins manns lið, þrjú tveggja manna lið og sex þriggja manna lið, samtals voru þetta 12 stúlkur og 14 drengir.

Okkar nemendur stóðu sig frábærlega og áttu lið í öðru og þriðja sæti í Beta deild og lið í þriðja sæti í Delta deild.