Kjartan, Einar Bessi og Þórir Steinn
Kjartan, Einar Bessi og Þórir Steinn

MA keppir í kvöld í Gettu betur við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, klukkan 20.00 á Rás 2. Þetta er önnur umferð í útvarpslotu keppninnar þetta árið, er 3. febrúar vann lið MA lið Starfsmenntabrautar á Hvanneyri með 18 stigum gegn 9.

Þeir sem ekki láta sér útvarpið nægja í kvöld geta mætt á staðinn og fylgst með en keppninni verður útvarpað frá Háskólanum á Akureyri, sal M102 í nýju byggingunni.

Og svo er bara að vinna leikinn!

.