Gettu betur 2014
Gettu betur 2014

Rútufylli af nemendum MA er á leið til Reykjavíkur þessa stundina þar sem lið Menntaskólans á Akureyri keppir við lið Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í Gettu betur í Sjónvarpinu í kvöld.

Liðsmenn okkar norðanmanna eru drengirnir þrír sem stóðu sig prýðilega í útvarpshluta keppninnar, en þeir eru Gunnar Örn Stephensen, Jóhann Viðar Hjaltason og Jóhann Ólafur Sveinbjarnarson. Ferðafólkið að norðan mun styðja við bakið á þeim eftir föngum og þeir sem heima sitja vona að suðurförum vegni vel.

Myndin er fengin hjá Skapta Hallgrímssyni.