Lið Menntaskólans á Akureyri vann lið Menntaskólans á Ísafirði örugglega í fyrstu útvarpsumferðinni í Gettu betur í kvöld. MA dróst á móti Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi í annarri umferð.

Leikur MA og FSu fer fram síðasta kvöldið í þeirri umferð. Það mun vera miðvikudagskvöldið 27. janúar klukkan 19.30. Sá tími kemur sér vel fyrir MA, prófum verður þá lokið.

Í liði MA í ár eru Einar Bessi Gestsson í 3 XY, Gunnar Kristjánsson og Nína Arnarsdóttir, sem bæði eru í 4Y. Nína kom ný inn í liðið í haust.

.